Flottustu Stelpurnar

WHITE CHICKS

15.01.2010 13:36:44 / chicks

Koma svooo! :)

Jæja stelpur! Ég var að hugsa um að endurvekja þessa síðu, þannig að við fáum nú fréttir af hvor annarri. Við getum líka alveg læst henni ef þið viljið, þá getum við haft þetta alveg eins og við viljum :)

En allavega, í dag er föstudagurinn 15.janúar, alveg merkisdagur því það er stelpukvöld í kvöld! Því miður verðum við ekki allar, en þið Guðný og Anne verðið með okkur vonandi næst! Ég hlakka alveg gríðarlega til að fara út að borða með ykkur sætubínur og spila og hafa gaman :*

En af mér er allt gott að frétta, ég er núna á öruggisfyrirlestri í sýklafræði-aðferðafræði tíma... fun fun fun eða þannig. Þið sem ekki hafið komið í heimsókn, verðið að fara að drífa ykkur í smá kaffi í Skógarásinn hjá mér, íbúðin orðin rosa sæt og Una Rakel orðin svo stór og sæt :)

En skrifið eitthvað bossarnir mínir... Knús og kossar!! :**


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2009 18:09:36 / chicks

Fun Fun Fun!!!

Jæja dæjur!!!
Það nennir víst engin að blogga hérna þannig ég verð bara að gera það AFTUR!!!
EEEN... Nú er ég komin til eyja og fer ekkert fyrr en eftir þjóðhátíð (mí læk)
Svo erum við búnar að gera allt reddý með peysurnar fyrir þjóðó;) þær verða örugglega truuuuublaðar, en eigum við ekki að leggja bara inná þig Anna Margrét því þú ert seinust sem kemur frá Reykjavík og getur þá komið með þær með þér?
En hvað er annars að frétta skiluru????
Einhver annar að blogga núna THEODÓRA... þú hefur örugglega mikið að segja okkur frá DK eða er það kannski allt leindó víjú víjú haha..
En allavana er ég alveg að deyja úr spenningi yfir þjóðhátíðinni en þið?
Guðný ætlar þú að vera á þjóðó??
L for Love baby´ssssss
kv. Soffía Sykurpúði

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 22:28:41 / chicks

Bústaður!!!

Jæja dömur mínar og dömur.

Ég var að hugsa gegt áðan hvað mér langaði að fara í bústað og ég er náttla að fara í bústað á föstud. með kallinum og barninu, en mér langar svo að við stelpurnar förum eina helgi!!!

Verðum bara að finna góðan tíma og þá er ég ekki að meina á næstu árum þá er ég að meina bráðlega sko.

þetta á ekki að vera svo erfitt að finna okkur tíma sem við erum ekki í vinnu og ef þið eruð í vinnu þá skuliði bara gjöra svo vel að fá ykkur FRÍ.

Við ættum nú að geta gert það fyrir okkur að gera eitthvað saman. Það myndi bara vera brjálað partý og öfga gaman!

Hvernig líst ykkur á það ?

kv. Soffía Sykurpúði




» 13 hafa sagt sína skoðun

31.03.2009 21:29:35 / chicks

stúlkustútar!

Hvað er að frétta?
Ég vil fá eitt komment frá hverri og einni...
Bara til að sýna lit :)

Love Love

Anna Margrét


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2009 15:20:32 / chicks

Sælar skvíur!

Sælar túttur!

Það er Linda sem talar...hey! við erum ömurlegur vinahópur..og hvað þá við sem búum hérna á höfuðborgarsvæðinu, ég fattaði það um daginn í afmælinu hennar Jóhönnu Björk að ég hafði til dæmis ekki séð Beggu síðan 1700 og súrkál, sem er auðvitað útí hött!!

Ég legg til bíó eða kaffihús í vikunni, þar sem ég hef ekki tíma fyrir einhvað djamm eða svoleiðis og hugsanlega ekki þið heldur..þannig máliðer bara að velja dag...ég kemst hvaða dag sem er nema fimmtudaginn... látið skoðanir ykkar í ljós skvísur og hittumst og slúðrum smá :)

Kv. Linda Economicus !! 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2009 20:44:18 / chicks

Skóli, Softball, California og Prescott, AZ

Góðann og blessaðann daginn elsku dúllurnar mínar.

Ég var bara að vakna og er að reyna að slíta mig frá tölvunni. Það er nú bara hægara sagt en gert, maður festist gjörsamlega á facebookinni.

Í Prescott er lífið gott. Bandaríkjamenn eru fullir af bjartsýni, Obama er að standa sig og við erum flutt í lítið hús aðeins fyrir utan bæinn. Ég er að passa fyrir hjónin Keri-og Mike Desoto. Þau eru ekkert smá góð við okkur. Þau eiga einkaflugvél og Mike bauð Tryggva að koma með sér niður í Phoenix og ná í vélina og fljúga hingað með hana. Tryggvi flaug allan tímann, sko kallinn:o Ég vinn annan hvern dag, þrjá tíma í senn. Stelpurnar sem ég er að passa heita Helena(5) og Sophia(7). Destot hjónin leifa okkur að vera í gestahúsinu án þess að borga. Þetta er alveg að bjarga okkur því dollarinn er svo ógeðslega hár að það er ekki fyndið.

Fólkið við hliðina á okkur á Jurassic Park. Er ekki að grínast, garðurinn þeirra er fullur af risaeðlum, drekum og allskonar dýrum búið til úr járni. Þvílíka ruglið, það vita allir hvar við eigum heima…eina sem við þurfum að segja er að við búum við hliðina á risaeðlunum.

Tryggvi er á fullu í skólanum og hernum. Ég var að byrja í fjarnámi frá FA og er ég að taka EFN103 og LOL103. Ég hugsaði með mér þar sem ég á mikinn frítíma að taka þetta og undirbúa mig fyrir sjúkraliðann eða hjúkkuna þegar við komum svo loksins heim. Ég fæ kanski að spurja þig Anna mín ef ég er strand á einhverju:d

Við eigum aðeins eitt ár eftir hérna úti, Tryggvi mun líklegast útskrifast í desember. Þannig að það er að verða síðasti séns að kíkja á okkur. Við erum að ákveða okkur hvað við eigum að gera yfir spring brake sem er í mars, kanski forum við niður í Mexico eða fara til Californiu og hitta Guðný Erlu og krakkana sem eru þar. Það verðu allavena tekið road trip:haha:

Ég er byrjuð að æfa softball í skólanum hans Tryggva. Softball er alveg eins og baseball nema í softball eru notaðir stærri boltar og aðeins stærri kylfur. Sem er bara gott því ég hef ekki hugmynd hvernig á að sveifla kylfunni, hvað þá að kasta boltanum. Fyrsta æfingin er á morgun og ég get ekki beðið eftir að byrja. Þetta er svo einum og amerískt…ég bara verð:p Eitt sem ég elska við skólann hérna er að þeir eru ekkert að tékka hvort ég sé í skólanum eða ekki. Ég get farið í hvaða klúbb sem er, fer í þrek frítt og get farið á alla atburði í skólanum...FRÍTT:!:

Í byrjun febrúar er ég svo að fara til Californíu. Hrafntinna og vinkonur hennar eru búnar að vera í heimsreisu frá því í nóvember og Hrafntinna og Kristína ætla að enda ferðalagið í Los Angeles. Guðný Erla og Helen Inga ætla að keyra frá Redding,CA þar sem þær búa og við ætlum að eiða helginni saman. Guðný er búin að redda okkur öllum gistingu í OC baby:) húsið er við sjóinn. Það verður sörfað og eitt Valentínusardeginum saman. Ég er að pissa í mig úr spenningi!!!:haha:

Við eigum flug heim 1 maí og verðum við líklega í bænum í sumar. Ég verð að finna mér einhverja vinnu, draumurinn er að vinna úti í góða veðrinu:p

Jæja þið eruð þá búnar að fá smá innlit í lífið hérna úti þar sem er alltaf sól og blíða.

Elska ykkur:****

Guðný


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 10:57:45 / chicks

asskotinn...

Ég ætla að ríða á vaðið, bretta upp ermarnar, spýta í lófana og halda áfram með smjörið og skrifa eitt blogg um það sem ég er að gera þessa dagna :) Svo megið þið eeeeeeeeeendilega gera það sama elskurnar mínar allar sem ein! (þetta var skipun, ekki bón:)

Akkurat núna er ég algjör lúði. Ég mætti í skólann klukkan 9.40 og skildi ekkert í því að ég var aaaalein mætt! Sendi Hafdísi sms hvað væri í gangi og þá komst ég að því að tíminn byrjar ekki fyrr en 11.05... GLÆSILEGT ANNA MARGRÉT MEGAVITLEYSINGUR!! En annars erum við bara 5 í bekknum (lífeindafræði 2.ár) þannig að það er alveg möguleiki á því að allir séu veikir eða eitthvað í einu, því ein býr á selfossi, ein á akranesi og af okkur 5 eru 4 mömmur! Þannig að núna er ég bara að hanga á facebook og blogga og þykjast vera að vinna í járn- og járnbindigetu skýrslu í klínískri lífefnafræði... En skólinn er mjög skemmtilegur núna, er klínískum áföngum og miklu verklegu þannig að það er soldið um skýrslugerðir sem eru soldið mikil vinna ef maður vill fá góða einkunnir en ekkert svo mikið um lestur fyrir fyrirlestrana sem ég er að fýla í botn :)

Annars gengur bara allt vel! Una litla rassgatarófan er svo æðislega yndisleg að ég bara gæti étið hana! Hún ætlar að vera algjör handfylli, alveg ekta prinsessa, ákveðin, hávær og mjög aktív! En það er allt í lagi, eftir að hafa passað Jenný og Höllu frekjudollur báðar í einu þá er maður ýmsu vanur! :) Farið bara inná barnaland fyrir fréttir af henni :)

Svo erum við Victor að leyta okkur að íbúð. Ég vil bara kaupa en þar sem ég er aftur komin í skóla og er ekki að fá neinn pening (nema námslánin í maí) þá er eitthvað erfitt að halda áfram að safna fyrir útborgun en þetta kemur allt! Svo er spurning um að byrja á því að leigja, en mig langar þá mest í stúdentaíbúðirnar því ég vil þá ekki vera að leigja í meira en 1-2 ár! Ég veit að íbúðirnar þar eru litlar, en ég vil frekar fá litla íbúð fyrst og geta haldið áfram að safna heldur en að fá stærri íbúð og ná ekki að safna neinu í viðbót til þess að geta keypt. En það á eftir að hugsa þetta til enda... Svo er ég að fara að panta á leikskóla fyrir Unu Rakeli! Þúst, hún er bara rétt 6 mán! Þetta er svo fáránlegt... á maður kannski að panta kirkju fyirir ferminguna líka eða? hehe maður hefði bara átt að gera þetta þegar maður var ólétt... Anyhow... Ég er að fara að kaupa mér kort í baðhúsinu, til að hreyfa sig aðeins og fá kannski smá orku í líkamann! Allur orkuforði hjá mér er fyrir löngu búinn, Una tekur gjörsamlega alla orku og alla næringu frá mér og ég er bara að limpast niður... (líka útaf nætursvefninum, hún er að vakna milljón sinnum á nóttunni!) þannig að nú fer kellan að dæla í sig d-vítamíni og anda að sér svitafýlunni á baðhúsinu og vonandi lagast maður eitthvað! =) Svo er Soffía sykurpúði líka að fara í baðhúsið þannig að við getum verið saman víí og Berglind er í WC alein.. Þegar Anne kom í bæinn og gisti hjá Berglindi þá hittumst við og það var gaman. Og Anne var með spánverjavin sinn með og Anne þú verður að kenna þeim ensku! Við vorkennum þeim svo að sitja bara og hlusta á okkur og skilja ekki neitt... :) Já svo langaði mér að spurja hverjar eru til í einhverja ferð, sumarbústaðaferð, ferð í bláa lónið, SKÍÐAFERÐ eða eitthvað sniðugt? SKÍÐA OG BLÁA LÓNIÐ-FERÐ? haaa? Guðný hvenar kemuru aftur heim?

En vá þetta er alltof langt blogg um alltof óskemmtilegt efni þannig að ég bíð spennt eftir ykkar bloggi! Soffía gæti nú komið með skemmtielgar fréttir og invite í INNFLUTNINGSPARTÝ!! úú jé Mig er farið að þyrsta í eitt alvöru almennilegt djamm, þegar Una hættir þessu veseni á nóttunni...

ADIOS MI AMIGA! TE "KÍERÓ" MI AMOR! :) eða eitthvað svoleiðis...


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.01.2009 23:57:27 / chicks

2008 liðið...

Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar!!! Og takk fyrir allar gömlu góðu stundirnar og megi þær verða MIKLU fleiri á komandi ári!!! Ég ætla að gera mitt besta til að gera fréttaannál white chicks, afsakið ef ég er að gleyma einhveru (sem ég er viss um að ég geri því ég er alveg dööö hehe)

Janúar: Anna Margrét byrjar að játa fyrir fólki að hún sé ólétt. Guðný fer til USA eftir jólafrí hérna heima, Soffía var úti á Kanarý jól og áramót og Anne var á Ítalíu um áramótin.

Febrúar: Fyrsta white chicks barnið fæðist í heiminn! Soffía Marý og Víkingur eignuðust Jóhönnu Björk 28. febrúar og hún var og er auðvitað yndislegust :)

Mars: Berglind keppti í Ungfrú Suðurland og var laaaang sætust! Algjört babe í bikini og algjör díva í rauða kjólnum sínum :)

Apríl: jóhanna Björk var skírð í Eyjum. Við stelpurnar lentum í ýmsu í Eyjum t.d. þegar Bóbó réðst á Emma niðrá Drífanda... Vá hvað það var ruglað kvöld og vá hvað fólk getur verið ruglað!!

Maí: Skólinn búinn! :) Anne fór aftur út til Malaga?? Guðný átti afmæli en hún var náttla úti í Bandaríkjunum :( Svo komu þau heim í Maí og hún fór að vinna á Kaffi Kró í Eyjum og Tryggvi fór að vinna í Utanríkisráðuneytinu (what a man Guðný!!)

Júní: Hmm... Allir að vinna eða slaka á...

Júlí: Anna Margrét og Victor Leifur eignuðust Unu Rakeli fallegu prinsessu þann 6.júlí! Og Guðný og Tryggvi gengu í það heilaga 26. júlí! Guðný var svo falleg, held að við höfum allar grátið þegar hún gekk inn í fallega kjólnum og með fallega hárið... svo FALLEGT! Og Anne átti afmæli 19. júlí

Ágúst: Þjóðhátíð og Kotmót... Berglind var úti í Búlgaríu yfir verslunarmannahelgina, Theó og Soffía í Eyjum, Guðný á Kotmóti, Anna í Rvk, Linda fyrir Norðan minnir mig, og Anne úti á Spáni... Svo byrjaði skólinn hjá einhverjum... Soffía átti afmæli 12. ágúst og Anna Margrét 24. ágúst. Soffía og Víkingur dúllur trúlofuðu sig á þjóðhátíðinni!

September: Una Rakel skírð. Soffía tók bílprófið, loksins!! =)

Október: Hmm...

Nóvember: Páll Óskars konukvöld í höllinni sem var ÆÐISLEGT! Anne kom heim frá Spáni og kynnti okkur fyrir Miguel úú :)

Desember: Berglind átti afmæli 10. des, Linda 14. des og Theó 16. des! Theó útskrifaðist frá FÍV.

Það sést vel hérna að maður er ekki alveg með sambandið í lagi stelpur mínar... Verðum að vera duglegar í þessu! Og bætið inn við það sem ég hef skrifað... getið gert það í öðrum lit eða eitthvað, en Una kallar!!

Love love - Anna Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 13:15:05 / chicks

Jól Jól Jól :)

Gleðileg Jól Elskurnar mínar.
Eigiði yndislegan dag :***
Hlakka til hittingsins hjá okkur vestmannaeyja stelpunum :**
Kv. Soffía Sykurpúði



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 13:23:35 / chicks

Afmæli :D

Hún á Afmæli dag
Hún á Afmæli dag
Hún á Afmæli hún Theoooodóraaaa
Hún á Afmæli dag :)
Til hamingju með afmælið engillinn minn :***
Eigðu góðan dag og ég(Soffía) sé þig  á morgun  :)
KV. White Chick.


Theo og Jóhanna Björk

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2008 14:51:20 / chicks

Afmælis Stelpur:D

Elsku Berglind til hamingju með afmælið 10. Desember :)
Elsku Linda til hamingju með Afmælið í gær :)
Svo á hún Theodóra afmæli á morgun :)
Við erum svo duglegar að blogga stelpur ohhh elska það :P
En ég hef ákveðið að víst að enginn nennir að blogga ætla ég að bara að gera það heheh..
En Það bara fara koma jól.. úff hvað tímin flýgur áfram. Litla stelpan mín 9 og hálf mánaða og Lillan hennar Önnu orðin 5 mánaða .. hehe
Takk fyrir Laugardaginn stelpur, Það er sko langt síðan ég skemmti mér svona vel:) og verðum við að gera allar eitthvað saman í eyjum yfir jóla og áramót, nema náttla Linda mín þú verður bara á Húsavík:(
Svo í gær bakaði ég fyrir lakrístoppa fyrir hana Lindu mína og voru þeir alveg geðveikt góðir ;)
Ég er svo að fara til eyja núna á Miðvikud. og verðum við litla fjölskyldan yfir jól og áramót :D
En það er s.s ekkert sem ég hef að segja sem er merkilegt hehe..
En Guðný mín ert þú ekki komin til Íslands? Kannski bara komin til eyja líka ?
En við sjáumst í eyjum hressar og kátar..
hlakka til að sjá ykkur allar Dúllurnar mínar :*****
kossar og knús

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 16:59:49 / chicks

Alveg Hardcore!

Sælar stúlkukindur...ég veit ég blogg aldrei, enda kona á framabraut sem hef lítinn tíma aflögu :lol: hehe!

En ég lenti í skemmtilegu atviki um helgina, sem ég má til með að deila með ykkur ...

Það var þannig að ég var í vinnu á laugardagskvöldið á videoleigunni.  Inn kemur kona á aldrinum 60-70 ára, voðalega huggulega bara venjuleg kona. Samtal okkar fer svona fram:

Konan: "Sæl, ekki eruði með klámmyndir?"

Ég: "erum við með...?"

Konan: "já..klámmyndir?"

Ég: "neeei...en ég við eigum einhvejrar svona erótískar hugsa ég"

Konan: "hvað er það?"

Ég: " þar sést ekki eins mikið...þær eru ekki eins grófar"

Konan: "nei! ég vil hafa þær grófar"

Ég: " já, nei því miður..."

Konan var rosalega leið yfir þessu öllu saman og sagði "jæja þá...áttu þá nokkuð einhverja góða spennumynd?" Einsog það sé bara næsti bær við ..en skiptir ekki máli.

Ég hjálpaði gömlu konunni að sjálfsögðu að finna góða mynd og var hún afar þakklát ;)

En ég sko sagt ykkur það stelpur að ég er ennþá að velta þessu fyrir mér... þú veist ég fór að hugsa..ef ég hefði nú átt einhvað hardcore klám fyrir dúlluna, hverning hefði atburðarrás kvöldsins verið hjá konunni? ekki misskilja mig (ég er ekki að hugsa þetta þannig)...en þið vitið, hefði hún bara komið heim , ristað sér brauð með marmelaði, hellt uppá og skellt einni hardcore í og hvað... ómæ!! alveg er þessi heimur alltaf að koma mér skemmtilega á óvart. 



Vildi bara deila þessu með ykkur

Kv.Linda Björk


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 12:44:59 / chicks

Fjör og enþá meira fjör..

jæja elsku rúsínurnar mínar..
Takk æðislega fyrir laugard. Berglind og Anna það var alveg gegt gaman, Held ég hafi samt fengið mér aðeins og mikið í tánna hahaha.. :P
En mér langaði bara svo skrifa stutt blogg hef s.s. ekkert rosa mikið að segja.
EN í enda nóv. þá er konukvöld í eyjum og erum við nokkrar fagrar mær að fara.. OMG hvað það verður gaman Sjitt sko...:D:D
Það er s.s. Beggi og Pacas sem verða kynnars og svo auðvitað uppáhaldið okkar allra held ég PÁLL ÓSKAR tryllir upp líðinn;)
Ég verð barnslaus, mamma og pabbi verða í rvk þegar þetta er og ætla þau bara að hafa hana hjá sér meðan ég fer til eyja.. Það verður samt örugglega mjööög skrítið að fara frá henni..
En hverjar ætla að fara á þetta konukvöld? Allavana ég get ég sagt ykkur..
Hey eitt en veit einhver um góða vinnu handa mér ? Mér vantar svo ógó mikið vinnu það er náttla bara ekki neitt að fá hérna í Rvk.. allir að missa vinnuna og svona:S
EN love love love
kv. Soffía Sykurpúði ..:*** XOXOXOX

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 20:00:24 / chicks

sunday bloody sunday!

Jæææja stelpur mínar.. Hvað segiði gott! Þessi síða sko.. alveg að gefa upp öndina8|  ég hef svo eeeeekkert að gera... Hata sunnudaga! ef maður er ekki að vinna þá bara hefur maður ekkert að gera... berglind lúði:$
Eg er allavega byrjuð að vinna í nýrri búð.. hjá sama fyrirtæki samt.. bara færð yfir i Steinar Waage kringlunni... sem var ágætt, fínt að breyta um umhverfi... og skósýking minnkaði lika aðeins.. hehe:haha:   Annas er ekki neitt að frétta.. Nema mér hlakkar ÖFGA MIKIÐ TIL 28.nóv!!!!!!!!!!! er að koma til eyja!.. konukvöld og páll óskar og allt !!:haha: cant wait =)

En hérna.. eg var að spá með næstu helgi... það er Halloween á Nasa 1.nóv.. langar ykkur kannski að hittast og taka fram búning og dansiskóna ...og hafa gaman ?.... mer langar soldið mikið að fara.. Það var svo gaman síðast þegar við tókum Halloween djamm.. í herberginu minu 2005 minnir mig... Eitthverstaðar er nú til helviti flott myndband af því kvöldi heheh:haha:

anywayyys... let me know beibís! lofjú móst :**




» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 19:32:43 / chicks

*sniff*

Langar að setja inn nýtt blogg, reyna að lífga upp síðuna þó svo að ég sé eiginlega að drepa hana með þessu bloggi hehe... En ég er að lesa síðu hjá einni móður sem á 19 ára gamla stelpu sem er í drullunni. Hún er núna í meðferð og allt lítur vel út eins og er, en hver veit... Einn dag í einu! :) En þetta ljóð var inná síðunni hennar, og guð minn góður það er svo sorglegt! En verð að posta því hérna... Ég veit að svona hlutir gerast, við fengum að vita það þegar bekkurinn minn fórum í tour á LSH, því það erum við sem tökum blóð og rannsökum hjá fólki, og mömmum sem drekka ennþá og dópa með barnið í mallanum... oj bara! En hérna kemur ljóðið:


Í vímu, í skít og reyk
áttu þau lítinn ástarleik
en þau gleymdu góðum sið
og líf kviknaði í móðurkvið.

Allt sem hún átti í mánuði níu
var hass og pípa með skítuga síu.
Hún var marin og með bláa bauga
verðandi móðir með glóðurauga.

Loks fæddist lítill drengur
gullmoli var hann og lífsins fengur.
En lítill friður var með þessum sálum
því ekkert breyttist í hennar málum.

Hún leit ekki á lífið sem mömmuleik
hún þurfti meira - bæði vín og reyk.
Og þrátt fyrir ásakanir og skammir
voru vatnssoparnir ætíð rammir.

Og þegar hana fór að langa
gleymdi hún munninum svanga.
Hún læddist á hverju kvöldi út
og hunsaði alla ábyrgð á litla kút.

Það var köld og dimm vetrarnótt
hann var svangur og með hitasótt.
Einn í félagslegu steyptu skjóli
grét hann eða svaf í mömmubóli.

Svo kom hún heim í morgunsárið
og sá hvar glitraði á barnstárið,
sem staðnað hafði á kaldri kinn
- hún faðmaði aldrei framar drenginn sinn.

Líf barnsins lagði hún að veði
fyrir skammvinna, ómerkilega gleði
fallegu augun mun hún aldrei aftur sjá
sem hún elskaði heitar en hægt er að tjá.

Alla daga eftir stóð hún stjörf og stíf
það hafði verið tekið frá henni allt líf.
Hún var full af sorginni dimmleitri,
því hún kæfði barnið sitt með eitri.

Tvö líf fórust þessa nótt
því afskaplega kyrrt og hljótt
en þó féllu þau með ólíkum hætti
féllu þau fyrir fíknarmætti.

grát grát...

Anna Margrét


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 938 dögum
<3 Húkkarinn <3
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 84434
Klukkan
Leitarbox